Almennir viðskiptaskilmálar

Útgáfa 2.0 — gildir frá 11. ágúst 2026

Viðskiptaskilmálar þessir, eins og þeir eru á hverjum tíma, gilda um þjónustu HUXify ehf., kt. 711025-0810 („félagið“).

1. Forgangur

Sérstaklega umsamin ákvæði skulu ganga framar skilmálum þessum ef ósamræmi er á milli.

2. Verð og greiðslur

Um verð fer samkvæmt samningi, samþykktu tilboði eða gildandi verðskrá félagsins.

Verð eru án virðisaukaskatts nema annað sé tekið fram.

Við vanskil reiknast dráttarvextir samkvæmt lögum.

Viðskiptavinur greiðir fyrirfram samþykktan ferðakostnað, leyfisgjöld og annan útlagðan kostnað vegna þjónustu þriðja aðila.

Við veruleg vanskil getur félagið stöðvað þjónustu að undangenginni skriflegri viðvörun og hæfilegum greiðslufresti.

3. Hugverkaréttur

Hvor aðili heldur réttindum að þeim hugverkum, gögnum og öðru efni sem hann átti eða hafði rétt til fyrir upphaf þjónustunnar.

Félagið heldur réttindum að eigin hugverkum og endurnýtanlegri tækni, aðferðum og sérþekkingu sem nýtt er eða verður til við veitingu þjónustunnar, nema annað sé samið.

Ef ekki er samið um annað öðlast viðskiptavinur, þegar umsamin þóknun hefur verið greidd að fullu, ótímabundinn afnotarétt af þeirri afurð sem sérstaklega er unnin fyrir hann, til nota í eigin starfsemi.

Afnotarétturinn felur ekki í sér framsal höfundaréttar eða annarra hugverkaréttinda.

Um sjálfstæðar vörur félagsins og hugverk þriðja aðila gilda viðeigandi leyfis- eða vöruskilmálar.

4. Gallar

Telji viðskiptavinur þjónustu eða afurð haldna galla skal hann tilkynna félaginu um gallann án ástæðulauss dráttar og veita því hæfilegt tækifæri til úrbóta.

Viðskiptavinur sem kaupir þjónustu í atvinnuskyni glatar rétti sínum til að bera fyrir sig galla ef hann hefur ekki tilkynnt félaginu um hann innan eins árs frá afhendingu viðkomandi afurðar eða veitingu þeirrar þjónustu sem krafa tekur til.

5. Bótaábyrgð

Bótaskylda félagsins takmarkast við beint og fyrirsjáanlegt tjón sem rekja má til saknæmrar vanefndar þess.

Félagið ber ekki ábyrgð á óbeinu eða afleiddu tjóni, svo sem rekstrartapi, tekjutapi, hagnaðarmissi eða missi viðskiptatækifæra.

Félagið ber ekki ábyrgð á tjóni að því marki sem rekja má til upplýsinga eða fyrirmæla viðskiptavinar, breytinga sem gerðar eru án aðkomu félagsins eða kerfa eða þjónustu sem félagið stjórnar ekki.

Samanlögð bótaábyrgð félagsins gagnvart viðskiptavini vegna allra tjónsatvika á hverju tólf mánaða tímabili skal ekki fara umfram þá heildarþóknun sem viðskiptavinur greiddi félaginu fyrir síðustu þrjá mánuði sem þjónusta var veitt fyrir fyrsta tjónsatvik tímabilsins.

Hafi þjónusta við viðskiptavin staðið skemur en þrjá mánuði skal miðað við heildarþóknun hans á því tímabili.

Takmarkanir þessa kafla gilda ekki um tjón sem rekja má til ásetnings eða stórfellds gáleysis félagsins eða að því marki sem ófrávíkjanleg lög mæla fyrir um annað.

6. Óviðráðanleg atvik

Hvorugur aðili ber ábyrgð á vanefnd eða töf vegna óviðráðanlegra atvika sem ekki eru á valdi hans og honum var ekki unnt að koma í veg fyrir eða yfirvinna með eðlilegum ráðum.

Verði aðili fyrir slíku atviki skal hann tilkynna gagnaðila um það án ástæðulauss dráttar. Skyldur hans frestast að því marki og meðan atvikið stendur í vegi fyrir efndum.

7. Trúnaður

Aðilar skulu gæta trúnaðar um óopinberar upplýsingar sem vegna eðlis þeirra eða aðstæðna má ætla að eigi að fara leynt og skulu þær aðeins notaðar vegna þjónustunnar.

Trúnaðarskylda tekur ekki til upplýsinga sem viðtakandi getur sýnt fram á að hafi verið honum löglega kunnar áður, hafi orðið opinberar án brots hans, hafi borist honum löglega frá þriðja aðila eða beri að afhenda samkvæmt lögum eða bindandi ákvörðun stjórnvalds eða dómstóls.

Miðlun trúnaðarupplýsinga til starfsmanna, undirverktaka og ráðgjafa sem þurfa aðgang að þeim vegna þjónustunnar telst ekki brot gegn ákvæði þessu, enda séu viðkomandi bundnir trúnaði.

Trúnaðarskylda gildir áfram eftir að þjónustu lýkur svo lengi sem upplýsingarnar hafa eðli trúnaðarupplýsinga.

8. Persónuvernd

Um vinnslu persónuupplýsinga fyrir hönd viðskiptavinar fer samkvæmt vinnslusamningi aðila.

9. Gildi einstakra ákvæða

Verði ákvæði skilmála þessara talið ógilt eða óframkvæmanlegt skulu önnur ákvæði þeirra halda gildi sínu.

Eftir því sem unnt er skal túlka eða aðlaga viðkomandi ákvæði þannig að tilgangi þess verði náð innan marka laga.

10. Lagaval og varnarþing

Um skilmála þessa og viðskipti sem þeir taka til gilda íslensk lög.

Ágreiningur vegna skilmála þessara eða viðskipta sem þeir taka til skal rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.