Aðgangsyfirlit fyrir Microsoft 365 - SharePoint og Teams

Hver hefur aðgang að hverju. Og á hvaða forsendum?

HUX Permission Report veitir skýra yfirsýn yfir aðgangsheimildir á SharePoint-svæðum og í Microsoft 365-hópum, þar á meðal þeim sem liggja að baki Teams. Skýrslan sýnir hver hefur aðgang að hverju, hvernig aðgangurinn fæst og hvenær heimildir breyttust. Þannig verður auðveldara að ákveða hvaða heimildir eigi að halda, hverjar þurfi að takmarka og hvar grípa þurfi til úrbóta. Ákvarðanir um aðgangsstýringu byggja því á rekjanlegum upplýsingum fremur en ágiskunum.

  • Hýst í ykkar eigin rekstrarumhverfi
  • Les en breytir engu
  • Les aldrei innihald skjala
Hvers vegna hefur Anna aðgang?
/sites/fjarmal › Áætlanir › Launaáætlun 2027.xlsx
Leið 1 af 2 Breyta
  1. SP-hópur Fjármál Members
  2. Öryggishópur Fjármálasvið
  3. Öryggishópur Launadeild hópur í hópi
  4. Notandi Anna Jónsdóttir
Leið 2 af 2 Lesa
  1. Notandi Anna Jónsdóttir
Virkur aðgangur, allar leiðir saman
SkoðaSækjaBreytaEyða Stjórna heimildum
Dæmi með tilbúnum nöfnum. Svona birtist síðan „Why does X have access to Y?“ í vörunni.

Af hverju núna

Aðgangsheimildir safnast upp án þess að nokkur taki eftir því

Copilot finnur allt

Microsoft 365 Copilot svarar út frá öllu efni sem notandinn hefur aðgang að. Gamlar heimildir og opnir tenglar geta þá skilað efni í svörum sem enginn ætlaði að deila.

Hópar innan hópa fela aðganginn

SharePoint-hópur inniheldur öryggishóp sem inniheldur annan öryggishóp. Á heimildasíðu SharePoint sést aðeins hópurinn sem fékk heimildina beint. Starfsmenn sem eru hættir geta enn verið skráðir einhvers staðar í keðjunni.

Rýni krefst yfirsýnar

Öryggisstaðlar og regluverk á borð við ISO 27001 og NIS2 gera ráð fyrir að aðgangsstýring sé virk og rýnd. Til þess þarf að sjá aðganginn, eins og hann er í dag og eins og hann var.

Hvað hún sýnir

Ólíkar leiðir til að skoða aðgangsheimildir

Allar síður byggja á sömu skönnun. Ef skönnunin náði ekki að lesa einhverjar upplýsingar kemur það fram á síðunni í stað þess að gefa í skyn að allt sé í lagi.

/

Yfirlit

Lykiltölur, staða síðustu skönnunar, handhafar Global Administrator-hlutverksins, svæði sem standa opin og óvirkir notendur sem enn hafa aðgang.

Sjá skjáskot
Skjámynd úr HUX Permission Report: yfirlitssíðan með lykiltölum síðustu skönnunar, handhöfum Global Administrator-hlutverksins, svæðum sem standa opin, óvirkum aðgöngum sem enn hafa aðgang og skiptingu heimilda eftir uppruna og stigi.
/why

Hvers vegna aðgangur?

Veldu hlut og notanda. Skoðaðu hverja aðgangsleið með hlutverki og heimildum, ásamt samanlögðum virkum aðgangi. Með því að smella á notanda eða hóp í leiðinni opnast síða viðkomandi.

Sjá skjáskot
Skjámynd úr HUX Permission Report: síðan „Why does X have access to Y?“ með notanda og skjali valin og heimildaleiðinni sem veitir aðganginn.
/changes

Aðgangsbreytingar

Hvað breyttist milli tveggja skannana á aðgangi notenda, deilitenglum og stillingum svæða, reit fyrir reit? Einnig allar breytingar á einu svæði, flokkaðar eftir því hver fékk aðganginn.

Sjá skjáskot
Skjámynd úr HUX Permission Report: síðan „Access changes“ fyrir eitt svæði síðustu 30 daga, með fjölda heimilda sem voru veittar og fjarlægðar og lista yfir nýjar heimildir.
/principals

Notendur og hópar

Hverjir ná til flestra staða og hve margir eru í hverjum hópi. Sía á óvirka aðganga. Hver notandi og hópur hefur eigin síðu með hópunum sem hann er í og meðlimum hópsins, líka gegnum hópa innan hópa.

Sjá skjáskot
Skjámynd úr HUX Permission Report: síða öryggishópsins „R Finance Specialist“ með umfangi, meðlimum og hópunum sem hann er sjálfur í.
/objects

Hlutir

Yfirlit í trjáformi yfir svæði, lista, möppur og skjöl sem hafa sérstakar heimildir. Hvert svæði hefur prófíl með áhættusamantekt.

Sjá skjáskot
Skjámynd úr HUX Permission Report: síðan „Objects“ með trjáyfirliti yfir svæði og prófíl eins svæðis, með deilistillingum, aðgangstölum, merkjum og DLP-reglum og lista yfir heimildir.
/sharing

Deilitenglar

Allir tenglar á einum stað. Síaðu eftir tenglum sem hver sem er getur opnað og leitaðu eftir þeim sem deildi.

Sjá skjáskot
Skjámynd úr HUX Permission Report: síðan „Sharing links“ með deilitenglum á einu svæði, tegund hvers tengils, aðgangi, viðtakendum, hver deildi og gildistíma.
/site-collection-admins

Stjórnendaaðgangur

Sýnir alla sem hafa site collection admin-réttindi og á hvaða svæðum hver og einn hefur þau.

Sjá skjáskot
Skjámynd úr HUX Permission Report: síðan „Site collection admins“ raðað eftir einstaklingum, með fjölda svæða hvers og eins, hvernig réttindin eru fengin og lista yfir svæðin.
/protection

Verndargöt

Svæði þar sem Sensitivity labels, opnun og DLP-reglur passa ekki saman. Einnig öll svæði sem tiltekin DLP-regla nær til.

Sjá skjáskot
Skjámynd úr HUX Permission Report: síðan „Protection gaps“ með fjölda svæða í hverjum flokki verndargata og lista yfir viðkvæm svæði sem eru opin án sértækrar DLP-reglu.
/scans

Keyrslusaga

Fyrir hverja skönnun sjást staða, tímalengd, breytingar, það sem ekki tókst að lesa og stillingarnar sem notaðar voru við keyrsluna.

/watched

Vöktuð svæði

Svæðin á vaktlistanum og nýr aðgangur á hverju þeirra frá síðustu yfirferð. Með því að smella má sjá allar breytingar á réttindum svæðisins, líka aðgang sem var fjarlægður. Bjallan efst í vefnum vísar hingað. Þar sést einnig hver fór síðast yfir breytingarnar í skýrslunni og hvenær.

/reports/copilot-readiness

Viðbúnaður fyrir Copilot

Hvaða viðkvæma efni Copilot getur dregið fram og hvað þarf að laga. Fyrir hverja prófun sem stenst ekki birtist verkefnalisti með aðgerð og hlekk á viðkomandi svæði. Skýrsluna má keyra fyrir allt umhverfið eða valda hópa og notendur og vista hana sem eina HTML-skrá.

Sjá skjáskot
Skjámynd úr HUX Permission Report: skýrslan „Copilot readiness“ með töflu yfir svæði eftir því hve viðkvæm og opin þau eru, áherslupunktum með ráðlögðum aðgerðum og tölum um hve víða notendur ná.

Microsoft 365 Copilot

Hversu tilbúið er umhverfið fyrir Copilot?

Innbyggð Copilot-viðbúnaðarskýrsla byggir á sömu skönnun og sýnir hvaða viðkvæmu upplýsingar Copilot gæti dregið fram og hvar þarf að grípa til úrbóta. Hægt er að skoða niðurstöður fyrir allt umhverfið eða afmarkaða hópa og notendur. Matið nær til SharePoint-svæða en ekki OneDrive, tölvupósts eða Teams-spjalla. Gögn sem ekki tókst að skanna eru merkt sem óþekkt, aldrei sem örugg.

Uppgötvun

Matið sýnir hvort svæði með viðkvæmum upplýsingum og víðtækum aðgangi séu falin fyrir Copilot með Restricted Content Discovery og hvort öll svæði beri viðkvæmnimerki (Sensitivity labels). Þessi tvö atriði ráða niðurstöðunni.

Hvaða viðkvæmu upplýsingar gæti Copilot fundið?

Aðgangur

Matið sýnir hvort svæði með viðkvæmum upplýsingum séu aðgengileg öllum, hvort M365-hóparnir á bak við þau séu lokaðir (private) og hvort aðgangur sé takmarkaður með Restricted Access Control. Svæði sem eru opin af ásettu ráði og innihalda ekki viðkvæmar upplýsingar, svo sem innranet, standast matið.

Hver hefur aðgang að viðkvæmum upplýsingum?

Vernd

Matið sýnir hvort hægt sé að meta hvert viðkvæmnimerki fyrir sig og hvort DLP-regla fyrir Copilot komi í veg fyrir að Copilot noti skrár sem bera viðkvæmnimerki.

Hvar vantar vernd?

Heimildakeðjur

Hver aðgangsleið er rakin, ekki aðeins niðurstaðan

Flest aðgangsyfirlit sýna aðeins hvaða heimildir notandi hefur. HUX Permission Report sýnir líka hvernig aðgangurinn fæst, frá SharePoint-hópum í gegnum Microsoft 365-hópa og aðra öryggishópa, allt niður að einstökum notendum. Þannig er hægt að rekja uppruna heimilda og ákveða hvar þarf að breyta aðgangi án þess að skerða heimildir annarra að óþörfu.

  • Allar aðgangsleiðir: Aðild að hópum er rakin alla leið niður á einstaka notendur, líka þegar hópar eru innan annarra hópa.
  • Hópar og notendur: Hópasíður sýna hvernig hver meðlimur tengist hópnum, beint eða í gegnum aðra hópa. Notendasíður sýna alla hópa sem viðkomandi tilheyrir.
  • Stjórnendaheimildir: Yfirlitið tekur einnig til stjórnendahlutverka, svo sem Global Administrator, og stjórnenda SharePoint-svæða.
  • Víðtækur aðgangur: Heimildin „Everyone except external users“ nær til allra starfsmanna en „Everyone“ getur einnig náð til gesta.
  • Nákvæm heimildastig: Staðfærð og sérsniðin heimildastig, svo sem „Full stjórn“, eru birt með raunverulegum heimildum sínum, ekki aðeins heiti.
Heimildastig, frá mestri áhættu
Full stjórn Full Control
Hönnun Design
Breyta Edit
Leggja til Contribute
Lesa Read
Beint SharePoint-hópur M365-hópur Hópur í hópi Everyone Deilitengill

Umfang

Hvað varan les, og hvað ekki

Söfnunarforritið les hver getur opnað hvað í SharePoint og gegnum hvaða hópa, og Sensitivity labels og DLP-reglurnar sem verja það.

Hluti Microsoft 365 og hvað er lesið
Hver hefur aðgang stig · eftir hvaða leið
Deilitenglar allir · fyrirtækið · fólk
Stillingar og merki deiling · merki · læsingar
Skráayfirlit heiti, ekki innihald
SharePoint-svæði
Samskipta- og teymissvæði
Já
Já
Já
Ef kveikt er á því
Svæði Microsoft 365-hópa með eða án Teams
Já meðlimir, eigendur, gestir
Já
Já
Ef kveikt er á því
Hefðbundnar rásir í Teams skrár á svæði teymisins
Já
Já
Já
Ef kveikt er á því
Einka- og samnýttar rásir sérstakt svæði fyrir hverja rás
Já
Já
Já
Ef kveikt er á því
Viva Engage-samfélög native-hamur: svæði hóps
Já
Já
Já
Ef kveikt er á því
Auðkenni og vernd
Entra ID notendur, gestir, hópar, hlutverk
Meðlimir hópa
—
Sýnileiki hópa
—
Purview Sensitivity labels, DLP
—
—
Ef kveikt er á því
—
Ekki lesið
OneDrive líka skrár sem deilt er í spjalli
Nei
Nei
Nei
Nei
Exchange pósthólf, póstur hópa
Nei
Nei
Nei
Nei
Skilaboð í Teams spjall, færslur í rásum
Nei
Nei
Nei
Nei
Loop og Planner Embedded-gámar, verkefni
Nei
Nei
Nei
Nei
Lesið Lesið ef kveikt er á því Ekki lesið · — á ekki við Aðgangur gegnum Microsoft 365-hópa, gestir meðtaldir

Rásasvæði og Viva Engage-samfélög eru lesin eins og önnur svæði. Innihald skjala er aldrei opnað né geymt.

Mörk

Það sem varan gerir ekki

Breytir engum heimildum

Hún sýnir stöðuna. Þið ákveðið hvað þarf að laga og „Stjórna aðgangi“ vísar beint á réttan stað í SharePoint.

Les ekki innihald

Ef kveikt er á skráayfirliti skráir hún hvaða skjöl eru til og hver kemst í þau, en hún les aldrei hvað stendur í þeim.

Sýnir ekki hver opnaði hvað

Hún sýnir hver getur opnað hvað, en les ekki atvikaskrár (audit log) um hver opnaði skjöl í raun.

Metur ekki DLP-atvik

Hún les DLP-reglur og til hvaða svæða þær ná, en ekki hvort tiltekin skrá hafi lent í reglu.

Telur ekki óvirkjuð PIM-hlutverk

Hlutverk í Entra ID eru talin hjá virkum handhöfum. Hlutverk sem bíða virkjunar í PIM eru ekki talin með.

Viltu betri yfirsýn yfir aðgangsheimildir?

Við bjóðum þér á kynningu þar sem við sýnum hvernig lausnin virkar og hvernig hún getur hjálpað þér að fá betri yfirsýn og stjórn á aðgangsheimildum

Fá kynningu frá HUX