Fréttir
Þriðjudagur 5.maí
Skrifað af Anna Árnadóttir   
Sunnudagur, 03. Maí 2009 17:23

Kæru HUXandi börn,

Á þriðjudag verðum við saman á Gónhól frá 15-17.

 

Munið að koma með útifötin ykkar því nú er vorhugur í okkur og við ætlum að fara í smá óvissuferð....Paola er komin heim og kemur kannski með volgar sögur frá Suður Ameríku.

 

Hlökkum til að sjá ykkur

HUX og knús

Kennararnir ykkar

 
Velkomin aftur!
Skrifað af Anna Árnadóttir   
Fimmtudagur, 16. Apríl 2009 19:11

Loksins erum við mætt aftur til starfa, eftir páskafrí. Fjörugur hópur nemenda átti skemmtilegan dag með kennurum, en við fórum í fjöruferð til Stokkseyrar. Þar beið okkar heill ævintýraheimur sem við nutum í veðurblíðunni. Við fundum m.a. sílapoll sem vakti hrifningu krakkanna, enda gaman að fylgjast með sílunum skjótast til og frá.  Við héldum til baka með góðan fjársjóð af skeljum, kuðungum og fleira úr fjörunni. Hugmyndin er svo að hreinsa og þurrka efniviðinn, en síðan ætlum við að nýta hann í  listaverk um fjöruna.

Síðast uppfært Sunnudagur, 10. Janúar 2010 20:17
Lesa meira...
 
Baniprosonno, Hanndverk og hönnun í apríl.
Skrifað af Anna Árnadóttir   
Þriðjudagur, 07. Apríl 2009 10:33

Á síðastliðinn sunnudag var opnuð myndlistarsýning Baniprosonno sem stendur út apríl. Er hann bæði  með málverk og teikningar til sýnis. Öll málverkin seldust og flestar teikningarnar hans einnig.

Þó nokkur hópur var við opnunina sjálfa þar sem indverski sendiherran á Íslandi opnaði sýninguna.

Var boðið upp á léttar veitingar og lifandi tónlist.

 

Á næstunni mun Handverk og hönnun vera með markað í Gónhól, 9,10 og 11 apríl.  Verður þar margt í boði fyrir unga sem aldna.

Ásamt því að kynna sér það sem Handverk og hönnun hefur í boði, er hægt að skoða sýningu Baniprosonno og hlýða á ljúfa tóna frá tónlistarfólki sem ætlar að koma og spila fyrir gesti og gangandi 10 og 11 apríl.

Tónlistarmennirnir eru :10. apríl, Steinun Bjarnadóttir úr Tungunum ásamt fríðu föruneyti og 11 apríl verður Garðar Olgeirsson og ætlar hann að þenja harmonikkuna af sinni einskæru snilld.

 

Gleðilega páska

 

 

 
Baniprosonno kemur til Íslands
Skrifað af Anna Árnadóttir   
Miðvikudagur, 01. Apríl 2009 23:40
Á Pálmasunnudag, 5. apríl kl.14.00 verður opnuð sýning á verkum indverska listamannsins Baniprosonno. Sendiherra Indlands á Íslandi opnar sýninguna.  Tónlistaratriði og léttar veitingar á boðstólum

Opið verður kl. 13-17 og er aðgangur ókeypis.
Sýningin nýtur stuðnings nýopnaðs Sendiráðs Indlands á Íslandi.Í

 Gallerí Gónhól verða jafnframt til sýnis og sölu  munir frá hönnuðum í Handverki og hönnun 9.-11.apríl nk.

 


Hinn 76 ára en síungi listamaður er fæddur í Kalkútta en býr nú við rætur Himalæjafjalla í 2500 metra hæð á milli þess sem hann ferðast um og heldur sýningar á Indlandi og í Evrópu þar sem hann hefur sýnt í Sonja Henie safninu, Listasafni Álaborgar, Menningarhúsi Stokkhólms  auk margra annarra stórborga á sínum langa ferli.


"Baniprosanno fer með liti af léttleika sem jaðrar við kæruleysi. Í myndum hans gætir sterkra áhrifa frá þjóðlegri list. Hann hefur allt frá barnæsku haft áhuga á hvernig hinn nævi eða þjóðlegi listamaður sér náttúruna og skynjar samruna sinn við hana. Hann er óbundinn af hefðum skólalistar og það er hrein unun að sjá hvernig risastórir fílar eða ugla sem felur sig í skóginum spretta fram á myndfleti hans með nokkrum frjálslega dregnum línum og sterkum litum", segir þýskur gagnrýnandi.


Þetta er önnur heimsókn listamannsins til Íslands en í fyrrahaust dvaldi hann hér um tíma og hélt þá námskeið fyrir börn í Listasafni Árnessýslu og verða þau endurtekin sjá vef Listasafns Árnesinga  sjá vef safnsins  http://www.listasafnarnesinga.is/

Hann mun einnig halda námskeið hér hjá okkur í HUX, Lista og tungumálamiðstöðinni 20. og 21. apríl en vikuna 18.-25.apríl verðum við með alls konar uppákomur hér í tengslum við indverska listahátíð á Eyrarbakka.

 

Síðast uppfært Sunnudagur, 09. Ágúst 2009 10:31
 
50.000 krónur söfnuðust hjá okkur til að byggja HUXskóla í Afríku!
Skrifað af Anna Árnadóttir   
Þriðjudagur, 31. Mars 2009 15:57

Uppskeruhátíð Huxskólans var á síðasta laugardag (28. mars). Þar mætti múgur og margmenni til að sjá, heyra og versla við krakkana sem voru á síðustu námskeiðum.  Allir voru glaðir og ánægðir með daginn sem heppnaðist vel. Börnin voru hver með sína verslun sem þau afgreiddu í og seldu margvíslegan varning, fataverslanir, ísbúð, pylsusjoppu, tombólu, dótabúð (Toys´R us), brauðbúð og stórmarkað (Bónus, Nóatún). Söfnuðust 50.þúsund krónur á sölu þessa varnings sem fór til Rauðakrossins og verða peningarnir notaðir til að opna Huxskóla í Afríku.

 

Ný námskeið hefjast eftir páska og þá verður þemað indverskt. Við munum halda aðra uppskeruhátíð og safna fyrir Huxandi jafnaldra okkar í Indlandi.

Kær kveðja.

Takk fyrir skemmtilegt samstarf

Síðast uppfært Miðvikudagur, 01. Apríl 2009 15:42
 
Síða 1 af 5

                                   menningarrs