|
Ég er besti vinur minn, sjálfsstyrking og listsköpun fyrir börn og unglinga.
Hóparnir eru kynjaskiptir og hámarksfjöldi eru 8 einstaklingar. Lögð er áhersla á frjálsa tjáningu í gegnum myndlist, tónlist og leiklist. Einstaklingsmiðað námskeið þar sem tekið er mið af þroska og hæfni hvers og eins. Markmið að námskeiði loknu er að þátttakendur sjái sjálfa sig í jákvæðu ljósi og beini sjónum að sínum sterku hliðum og ákveði að hafa áhrif á aðstæður sínar. Hópar 11-13 ára mæta á þriðjudögum kl. 17.30- 19.00 Hópar 14-16 ára mæta á fimmtudögum kl. 17.30 – 19.00 Verð 7.900 á mánuði.
|