5 - 8 ára

stelpa

Tungumálin í brennidepli!


Námskeið fyrir 5-12 ára börn
Kennt verður tvisvar í viku, í tveimur hópum. Hópur A mætir á mánudögum og miðvikudögum en hópur B á þriðjudögum og fimmtudögum.
Kennsla hefst kl. 14.30 og lýkur kl. 16.30. Hóparnir eru aldurskiptir, 5-8 ára og 9- 12 ára. Strætóferðir eru milli staða í Árborg og samningar standa yfir um að strætó taki börnin við skóla og skili þeim á sama stað.

 

Börn sem fá tækifæri til að læra annað tungumál meðan þau eru enn mjög ung nota sömu aðferð við að ,, pikka upp “ tungumálið og þau gerðu með sitt móðurmál. Þau virðast nota máltökuferlið áfram á annað, þriðja, fjórða tungumálið og ef til vill fleiri?
Ung börn nota hlutverkaleiki og/eða sína leiki við að taka upp nýtt tungumál. Þau gera það einnig með því að taka þátt í starfi fullorðinna. Þau byrja á að átta sig á aðstæðum, hvað er að gerast og ná síðan málskilningi með samskiptum sínum við fullorðna.
Ung börn hafa meiri tíma til að nota tungumálið í daglegum athöfnum sínum á meðan skólar fylla stundaskrána og festa hugann í ákveðin ramma sem ekki er leyfilegt eða hægt að fara úr vegna þess að það miðast allt við að vega og meta árangur í tölum og staðreyndum.
Ung börn læra tungumál með annarri nálgun en beinlínis að ,,læra” það eins og eldri börn og fullorðnir gera. Þar af leiðir að þau ná betri framburði og málvitund þeirra er sterkari, bæði fyrir tungumálinu og menningunni á bak við það. Eftir því sem eintyngd börn verða meðvitaðri um sig sjálf og einstaklingsvitund þeirra eykst, verða þau hégómlegri og hræddari við að tjá sig á öðrum tungumálum og þau strita við að læra tungumál á málfræðireglum. Því yngri sem þau byrja að nota tvö tungumál , því betra!

 

                                   menningarrs