|
Hux Lista- og tungumálamiðstöð í Gónhól á Eyrarbakka Litið er á tungumál sem einstaklingsbundið, vitsmunalegt og skapandi ferli og nemendur fá að kynnast ýmsum leiðum að hverju tungumáli. Þannig er til að mynda, spænska er m.a. kennd í eldhúsinu, umhverfisfræðsla og landafræði kynnir nemendur fyrir dönskunni og stjörnuskoðun og jarðfræði blandast enskunni. Mikil áhersla er lögð á tónlist,matarræði, dans, hreyfingu og útiveru en auk þess sjálfstyrkingu tjáningu og leiklist. Þannig munu nemendurnir byggja upp tjáskiptahæfni sína smátt og smátt með því að nota tungumálið á fjölbreyttan og skemmtilegan hátt.
Kennslufyrirkomulag Kennsla fer fram tvisvar í viku á mánudögum og miðvikudögum annars vegar og hins vegar á þriðjudögum og fimmtudögum. Kennsla hefst kl. 15.00 og lýkur 16.30. Hóparnir eru aldurskiptir, 5-8 ára og 9-12 ára. Verð 12.900 fyrir 10 skipti Systkinaafsláttur 20% af heildargjaldinu.
Hægt er að skrá börnin alla önnina og er þá veittur 20% afsláttur ef greitt er fyrir heildarskráningu fyrirfram.
Ég er besti vinur minn, sjálfsstyrking og listsköpun fyrir börn og unglinga. Hóparnir eru kynjaskiptir og hámarksfjöldi eru 8 einstaklingar. Lögð er áhersla á frjálsa tjáningu í gegnum myndlist, tónlist og leiklist. Einstaklingsmiðað námskeið þar sem tekið er mið af þroska og hæfni hvers og eins. Markmið að námskeiði loknu er að þátttakendur sjái sjálfa sig í jákvæðu ljósi og beini sjónum að sínum sterku hliðum og ákveði að hafa áhrif á aðstæður sínar. Kennt á miðvikudögum kl. 17.00- 18.30
Verð 7.900 kr. fyrir 10 skipti
Kennsla á vorönn hefst 12.janúar og kennt verður í Gónhól á Eyrarbakka.
Nánari upplýsingar gefur Anna S. Árnadóttir í síma 894 2522 eða á www.gonholl.is
Skráning fer fram á netfanginu
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|