Markmið / Stefna

 

                                                                                               

Lista- og tungumálamiðstöð í Gónhól á Eyrarbakka

www.hux.is

 

Markmið

 

  1. Að skapa nýja frístundaleið fyrir börn og unglinga .
  2. Að sannreyna kenningar um tungumálakennslu ungra barna.
  3. Að draga úr klíkumyndun og efla samkennd og vináttu.
  4. Að leggja rækt við sterkustu hliðar hvers og eins og virkja þær til aukins námsárangurs
  5. Að efla umhverfisvernd og sparnað með ungu fólki.
  6. Að auka tengsl milli kynslóða og þjóðarbrota.

                                              

Leiðir

 

  1. Lista – og tungumálanámskeið sett af stað og geta komið í stað skólavistunar í Árborg.
  2. Rannsóknir og kenningar um tungumálanám ungra barna hafðar að leiðarljósi og sannreyndar í daglegu starfi.
  3. Brjóta upp venjulega uppröðun í skólastarfi sem ræðst af búsetu og hefur leitt til klíkumyndunar og eineltis. Efla samhug og kærleika með börnum með því að kynna fyrir þeim ólíka menningu og siði.
  4. Notaðar margvíslegar leiðir til að þroska hverja og eina af hinum 8 greindum fjölgreindarkenningar Gardners með tungumál í brennidepli.
  5. Aðföng verði í lágmarki. Nemendur læra að flokka og endurnýta ,,ruslið “ heima hjá sér og nýta í náminu. Virkja sköpunarkraftinn og útsjónarsemina með því að koma auga á tækifærin til að læra af náttúrunni. Nemendur reka nytjamarkað og nota ágóðann af honum til að styrkja jafnaldra sína í öðrum löndum.
  6. Alþjóðleg tengsl efld með samskiptum við nemendur í öðrum löndum með bréfaskiptum og heimsóknum. Nemendur halda kvöldsamkomur til að styrkja stöðu nýbúa á Íslandi og eyða fáfræði og fordómum. Eldri borgarar taka virkan þátt í starfinu með heimsóknum og fræðslu um fyrri tíma.

 

Vinnuferli

Undirbúningshópur samanstendur af kennurum, listamönnum, umhverfis og landfræðingi, næringarfræðingi og íþróttakennara. Við erum að kenna tilraunanámskeið núna sem hófst 12.janúar og út frá þeirri reynslu sem skapast af því erum við að skipuleggja næstu námskeið og útbúa bækling til að dreifa í hús á svæðinu.

 

Í dag eru um 30 börn á námskeiði þar sem við kennum tvisvar í viku, tvo tíma í senn. Kennslan er blanda af tungumálum, þjóðfræði, mannfræði og landfræði. Myndlist, tónlist og leiklist er fléttað inn og verið er að undirbúa tilraunaeldhús þannig að matargerðalistin geti orðið hluti af náminu. Við höfum nýtt okkur öll tækifæri sem hafa komið uppí hendurnar á okkur og fléttað inn í dagleg störf . Við fengum til að mynda fólk í heimsókn frá Ástralíu og Nýja Sjálandi í vikunni og þá unnum við með þá heimsálfu og síðan eigum við von á gestum frá Afríku og munum þá kenna um líf og starf í Afríku. Við höfum kennt spænsku og ensku síðustu vikur útfrá kenningum um máltökuferli barna og höldum skýrslu um árangurinn sem við notum í áframhaldandi þróunarstarf og námsefnisgerð.  Kennsla fer fram eftir skóla og reynt hefur verið að semja við Árborg um notkun almenningsfaratækja við að keyra nemendur í og úr skóla.

 

Föstudagar eru notaðir til þróunarstarfs og skipulagningar. Mánaðarlega eru uppgjörsfundir hjá skólaráði og eftir þá er skilað skýrslu um þróun og stefnu starfsins. Skólaráð samanstendur af 4 nemendum og tveimur úr undirbúningshóp.

Áætlað er að kenna a.m.k 3 tungumál, enska,dönsku spænsku og svo síðar frönsku en við höfum tryggt okkur  kennara með þessi tungumál að móðurmáli til að sjá um kennsluna. Að auki er mikil áhersla á myndlist, tónlist og ljóðlist. Umhverfisvernd, sjálfstyrking, tjáning, matargerðarlist, ljósmyndun og leiklist eru einnig þættir sem vert er að nefna og þeim mun fléttað inn í námskrána.

 

Verk- og tímaáætlun

Umsækjandi er grunn- og framhaldskólakennari og hefur unnið að þessari hugmynd um nokkurt skeið, m.a. með rannsóknum og kennslu. Þá hefur umsækjandi rekið Listasmiðju fyrir börn í Gallerí Gónhól í sumar og safnað reynslu þar, Húsnæði er fyrir hendi á Eyrarbakka og hefur þegar verið hafist handa við að innrétta og undirbúa námskeiðshald í vetur. Þar höfum við til umráða 220m2 sem áætlað er að skipta í tvær kennslustofur og tilraunaeldhús. Undirbúningshópur hóf störf í haust eftir að verkefnið hlaut 700.000 króna styrk frá Menningarráði Suðurlands og hafa þeir peningar jafnframt verið notaðir til að útbúa heimasíðuna, www.hux.is

 

Verkefnið er þó áætlað 2ja ára þróunarverkefni sem verður hluti af fræðslu og menntasetri í tengslum við Aldamótaþorpið á Eyrarbakka.

 

Nýnæmi

Það er nýnæmi að byrja að kenna ungum börnum tungumál.  Reynsla foreldra tvítyngdra barna sýnir að börn geta auðveldlega tileinkað sér fleiri en eitt tungumál í einu og þau gera það yfirleitt án þess að þeim sé kennd málfræði heldur virðast þau nota til þess sama ferli og við máltöku móðurmálsins. Við teljum því spennandi verkefni að fylgjast með því hvort hægt er að kenna börnum tungumál frá fimm ára aldri og hvernig það hefur síðan áhrif  á frekara nám. Það yrði  framhaldsverkefni síðar að fylgjast með þeim börnum sem eru hjá okkur og gera samanburðarrannsókn við aðra nemendur sem ekki hafa verið í Hux. Tungumálakennsla hér á landi hefst almennt ekki í fyrstu bekkjum grunnskólans en flestum börnum og unglingum þykir skemmtilegt að tala ,,útlensku” og við teljum að hægt sé að virkja áhuga þeirra með því að kenna tungumál.

 

Atvinnusköpun

Í Árborg eru um 1000 börn í tveimur skólum á Selfossi. Á  Eyrarbakka og Stokkseyri eru um 150 börn og í öllum skólunum er unnið gott starf. Okkar markmið er að fara í samstarf við skólana og koma á móts við þörfina á frístundaúrræðum. Við munum einnig vinna í samstarfi ÍTR sem hefur unnið áhugavert þróunarstarf í anda kenninga Gardners og leita fanga í smiðju þeirra skóla og einstaklinga sem unnið hafa markvisst að þróun skólastefnu á Íslandi.

 Við byrjum með lítinn undirbúningshóp en fáum síðan fleiri kennara og sérfræðinga til starfa með okkur eftir því sem við festum okkur í sessi í æskulýðsstarfi. Ef vel tekst til í þróunarstarfinu er framtíðarsýnin auðvitað sú að deila reynslu okkar til þeirra sem hún gæti nýst.

 

Markaðsetning

Verkefnið verður kynnt á ýmsan hátt. Við höfum þegar sent út vefsíðu og kynnt starfið fyrir skólayfirvöldum í Árborg. Nú er verið að hanna bækling þar sem næstu námskeið eru kynnt og við höfum boðið forráðamönnum barna og unglinga í heimsókn og kynnt starfsemina. Orðspor okkar á samt alltaf að vera besta auglýsingin.

 

 

 

 

 

 

                                   menningarrs