| Velkomin aftur! |
| Skrifað af Anna Árnadóttir |
| Fimmtudagur, 16. Apríl 2009 19:11 |
|
Loksins erum við mætt aftur til starfa, eftir páskafrí. Fjörugur hópur nemenda átti skemmtilegan dag með kennurum, en við fórum í fjöruferð til Stokkseyrar. Þar beið okkar heill ævintýraheimur sem við nutum í veðurblíðunni. Við fundum m.a. sílapoll sem vakti hrifningu krakkanna, enda gaman að fylgjast með sílunum skjótast til og frá. Við héldum til baka með góðan fjársjóð af skeljum, kuðungum og fleira úr fjörunni. Hugmyndin er svo að hreinsa og þurrka efniviðinn, en síðan ætlum við að nýta hann í listaverk um fjöruna.
Næst þegar hópurinn mætir verður indverski listamaðurinn Baniprosonno með krökkunum og leiðir þau um undraveröld frjálsar listsköpunar. Mán. 20/4, kl. 15-16:30 Froskar á Íslandi Þri. 21/4, kl. 15-16:30 Umbreyting hluta Mán. 27/4, kl. 15-16:30 Ég teikna, þú málar Þri. 28/4, kl. 15-16:30 Skordýraljós Takk fyrir daginn og góða skemmtun hjá Baniprosonno! Við HUXum fallega til ykkar :) |
| Síðast uppfært Sunnudagur, 10. Janúar 2010 20:17 |

