| Skráning stendur yfir |
| Skrifað af Anna Árnadóttir |
| Þriðjudagur, 07. Apríl 2009 11:03 |
|
Að lesa og skrifa , list er góð.... Forskólanámskeið fyrir 3, 4 og 5 ára. Tími: mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga. Hægt er að velja 2x eða 4x í viku. Kl: 9:00 -11:45 (Getur komið í staðinn fyrir hálfan dag í leikskóla) Verð 2x í viku 17.900 kr. og 4x í viku 30.800 kr. 6 eða 12 skipti ( 18 eða 36 tímar) Listir og tungumál, lönd og lýðir... litrík námskeið fyrir 6-12 börn. Tími: mánudaga og miðvikudaga kl. 15:00-17:00 Tími: þriðjudaga og fimmtudaga kl. 15:00-17:00 Verð 12.900 kr. 10 skipti. Ég er besti vinur minn, sjálfsstyrking og listsköpun fyrir 11- 16 ára. Hóparnir eru kynjaskiptir og hámarksfjöldi eru 8 einstaklingar.Lögð er áhersla á frjálsa tjáningu í gegnum myndlist, tónlist og leiklist. Einstaklingsmiðað námskeið þar sem tekið er mið af þroska og hæfni hvers og eins. Markmið að námskeiði loknu er að þátttakendur sjái sjálfa sig í jákvæðu ljósi og beini sjónum að sínum sterku hliðum og ákveði að hafa áhrif á aðstæður sínar. Tími: miðvikudagar kl. 17.00- 18.30 Verð 7.900 kr. 10 skipti Tungumálið er leikur einn. Samverunámskeið fyrir börn og foreldra sem vilja læra tungumál saman á skemmtilegan hátt. Amma og afi líka velkomin. Tilvalin fermingargjöf! Tími: þriðjudaga kl. 19.30-20.30 ÞÝSKA Verð 15.800 kr. 10 skipti Söngnámskeið fyrir börn 5-6 ára, 7-8 ára, 9, 10 og 11 ára, 12, 13, 14 og 15 ára. Við byrjum strax eftir páska 15.apríl Farið verður í raddbeitingu og tæknikennslu. Nemendur læra lög að eigin vali og endar námskeiðið á tónleikum fyrir foreldra og ættingja (nágrannar mega líka koma). Hver hópur er að hámarki 6 nemendur. Hægt er að fá einkakennslu fyrir nemendur og eru þeir tímar eftir samkomulagi. Þeir tímar enda einnig á sameiginlegum tónleikum með öllum söngnemendum. Tími: mánudaga og miðvikudaga kl. 19:00-20:00 Tími: þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:00 -18:00 Verð 12.900 kr. 10 skipti Verð fyrir einstaklinga 15.900 kr. 10 skipti. 30 mínútur
Listin að tjá sig í litum námskeið fyrir unga sem aldna. Á þessu námskeiði munu nemendur læra að tjá tilfinningar sína með litum. Markmið námskeiðsins er að veita nemendum útrás fyrir tilfinningar sínar á nýjan og uppbyggilegan máta. Notaðar verða óhefðbundnar og spennandi leiðir til að nálgast viðfangsefnið. Námskeiðið er bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Tími: mánudags og fimmtudagskvöld kl. 19:30-21:00 Verð 21.600 kr. 12 skipti . Allt efni innifalið. Ath. sérstakur 25% afsláttur fyrir eldri borgara.
Hatha Jóga Líkamsæfingar, öndun og slökun sem stuðla að bættri líðan, líkamlega og andlega. Styrkir huga og líkama, losar einnig um streitu. Tímar sem henta byrjendum sem og lengra komnum. Æfingarnar miðast við getu hvers og eins. Tími: Mánudaga og miðvikudaga kl 17.20 – 18.20 Tími: Þriðjudaga og fimmtudaga kl 12.00 - 13.00 6 vikna námskeið 11.400 kr. (12 tímar) Skráning er hér á Gónhól á sérstökum skráningarblöðum sem liggja frammi eða á www.hux.is Öll námskeið eru með fyrirvara um að næg þátttaka fáist. |
| Síðast uppfært Sunnudagur, 10. Janúar 2010 20:18 |

