|
Baniprosonno kemur til Íslands |
|
Skrifað af Anna Árnadóttir
|
|
Miðvikudagur, 01. Apríl 2009 23:40 |
Á Pálmasunnudag, 5. apríl kl.14.00 verður opnuð sýning á verkum indverska listamannsins Baniprosonno. Sendiherra Indlands á Íslandi opnar sýninguna. Tónlistaratriði og léttar veitingar á boðstólum Opið verður kl. 13-17 og er aðgangur ókeypis. Sýningin nýtur stuðnings nýopnaðs Sendiráðs Indlands á Íslandi.Í Gallerí Gónhól verða jafnframt til sýnis og sölu munir frá hönnuðum í Handverki og hönnun 9.-11.apríl nk. Hinn 76 ára en síungi listamaður er fæddur í Kalkútta en býr nú við rætur Himalæjafjalla í 2500 metra hæð á milli þess sem hann ferðast um og heldur sýningar á Indlandi og í Evrópu þar sem hann hefur sýnt í Sonja Henie safninu, Listasafni Álaborgar, Menningarhúsi Stokkhólms auk margra annarra stórborga á sínum langa ferli.
"Baniprosanno fer með liti af léttleika sem jaðrar við kæruleysi. Í myndum hans gætir sterkra áhrifa frá þjóðlegri list. Hann hefur allt frá barnæsku haft áhuga á hvernig hinn nævi eða þjóðlegi listamaður sér náttúruna og skynjar samruna sinn við hana. Hann er óbundinn af hefðum skólalistar og það er hrein unun að sjá hvernig risastórir fílar eða ugla sem felur sig í skóginum spretta fram á myndfleti hans með nokkrum frjálslega dregnum línum og sterkum litum", segir þýskur gagnrýnandi.
Þetta er önnur heimsókn listamannsins til Íslands en í fyrrahaust dvaldi hann hér um tíma og hélt þá námskeið fyrir börn í Listasafni Árnessýslu og verða þau endurtekin sjá vef Listasafns Árnesinga sjá vef safnsins http://www.listasafnarnesinga.is/
Hann mun einnig halda námskeið hér hjá okkur í HUX, Lista og tungumálamiðstöðinni 20. og 21. apríl en vikuna 18.-25.apríl verðum við með alls konar uppákomur hér í tengslum við indverska listahátíð á Eyrarbakka.
|
|
Síðast uppfært Sunnudagur, 09. Ágúst 2009 10:31 |