Músin sem dó! Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Anna Árnadóttir   
Fimmtudagur, 19. Mars 2009 13:47

Við fundum litla mús alveg dána...hún lá bara þarna fyrir utan svaf með smá blóð í eyranu. Við settum á okkur gúmmíhanska og tókum hana og skoðuðum hana vel. Hún var alveg föst eins og íspinni og örugglega steindáin. Við ákváðum að jarða hana. Við fundum tekassa frá kennurum okkar og bjuggum um hana þar. Hún var með lokuð augun og alveg eins og sofandi en hún er samt hjá Guði.

Við grófum holu við sjávargarðinn og settum litlu músina okkar þar ofan í. Svo mokuðum við yfir og settum kross á leiðið hennar sem við bjuggum til úr spýtum sem sjórinn gaf okkur. Við sungum sálm og líka eitt spænskt lag. Svo bjuggum við til þessa bæn:

Vertu nú yfir og allt um kring

með eilífri blessun þinni

Sitji Guðs englar, saman í hring

músinni yfir minni

Amen

 
Opið hús 28.mars nk. Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Anna Árnadóttir   
Fimmtudagur, 05. Mars 2009 14:12

Laugardaginn 28.mars munum við bjóða gesti velkomna til okkar og kynna starfið. Börnin ætla að hafa myndlistarsýningu og tónleika, halda nytjamarkað til styrktar jafnöldrum sínum í Afríku og opna sölubúðir.

Allt afgangsdót sem þið eigið og megið missa er vel þegið:-)

Kaffihúsið verður opið og börnin munu bjóða þar eitthvað gómsætt gegn vægu gjaldi.

Endilega takið daginn frá...opið verður frá kl. 14-17

kær kveðja

HUX

 
Nýir kennarar í HUX Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Anna Árnadóttir   
Fimmtudagur, 05. Mars 2009 14:01

´Davíð Art Sigurðsson myndlistarmaður og Kristín Magdalena leikskólakennari í sérkennslunámi hafa verið að aðstoða okkur undanfarnar vikur. Áætlað er að ráða þau til starfa sem allra fyrst en Davíð mun sjá um myndlistina og Kristín um tónlist og þýskukennslu aðallega. Að sjálfsögðu munu þau svo taka þátt í stefnumótun og þróunarvinnu með okkur í HUX.

Við bjóðum þau velkomin og hlökkum til að vinna með þeimSmile

 
Nýir kennarar í HUX Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Anna Árnadóttir   
Fimmtudagur, 05. Mars 2009 14:01

´Davíð Art Sigurðsson myndlistarmaður og Kristín Magdalena leikskólakennari í sérkennslunámi hafa verið að aðstoða okkur undanfarnar vikur. Áætlað er að ráða þau til starfa sem allra fyrst en Davíð mun sjá um myndlistina og Kristín um tónlist og þýskukennslu aðallega. Að sjálfsögðu munu þau svo taka þátt í stefnumótun og þróunarvinnu með okkur í HUX.

Við bjóðum þau velkomin og hlökkum til að vinna með þeimSmile

Síðast uppfært Fimmtudagur, 05. Mars 2009 14:07
 
Skráning stendur yfir .... Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Anna Árnadóttir   
Laugardagur, 14. Febrúar 2009 19:48

Ný námskeið hefjast 23. febrúar nk.

 

Forskólanámskeið fyrir bráðger börn 4-5 ára.

Tími: þriðjudagar og fimmtudagar kl. 13.00-14.00

Verð 12.900 kr.  10 skipti

 

Tungumálin í brennidepli I,  byrjunarnámskeið fyrir 6-12 ára börn.

Tími: þriðjudagar og fimmtudagar  kl. 15.00-16.30

Verð 12.900 kr.  10 skipti

 

Tungumálin í brennidepli II,  framhaldsnámskeið fyrir 6-12 ára börn.

Tími: mánudagar og miðvikudagar  kl. 15.00-17.00

Verð 12.900 kr. 10 skipti

 

Ég er besti vinur minn, sjálfsstyrking og listsköpun fyrir  11- 16 ára.

Hóparnir eru kynjaskiptir og hámarksfjöldi eru 8 einstaklingar.

Lögð er áhersla á frjálsa tjáningu í gegnum myndlist, tónlist og  leiklist.

 Einstaklingsmiðað námskeið þar  sem tekið er mið af þroska og hæfni hvers og eins.

 Markmið að námskeiði loknu er að þátttakendur sjái sjálfa sig í jákvæðu ljósi og beini sjónum að sínum sterku    hliðum og ákveði að hafa áhrif á aðstæður sínar.

Tími: miðvikudagar  kl. 17.00- 18.30

Verð 7.900 kr. 10 skipti

 

Tungumálið er leikur einn.

 Samverunámskeið fyrir börn og foreldra sem vilja læra  tungumál saman á skemmtilegan hátt.   Amma og afi líka velkomin.

Tilvalin fermingargjöf!

Tími: þriðjudaga kl. 17.00-18.30 ENSKA

Tími: fimmtudaga kl. 17.00-.18.30 SPÆNSKA

Verð 15.800 kr. 10 skipti

Fjölskylduafsláttur: 1. foreldri 10% / 2. foreldri 20%

ömmuafsláttur 30% afaafsláttur 40%

Önnur námskeið verða auglýst síðar, sjá undir námskeið hér á síðunni.

Síðast uppfært Þriðjudagur, 17. Febrúar 2009 10:32
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 Næsta > Síðasta >>

Síða 3 af 6

                                   menningarrs